Tuesday, October 30, 2007

Fyrsta færsla

Góðan dag. Ég er að fara mín fyrstu skref í bloggi. Hér mun ekki verða skrifað um nýjustu kjaftasöguna en er til í að fá góða brandara. Það kemur sér oft vel að kunna einn til tvo góða en þar sem ég gleymi alltaf öllum strax væri fínt að fá brandara senda.

Hvernig var þetta með manninn sem var að byrja í Háskólanum og var að tala við vin sinn sem spurði á hvaða grein hann væri. Þá svaraði vinurinn á þá leið: "Hvað fæ ég ekki borð og stól eins og hinir".

3 comments:

Til að muna .. said...

svo flott kona - búin að blogga sína fyrstu færslu :)

Þorgerður AKA Toggan said...

ahahahahaha þessi var góður.
Til hamingju með bloggsíðuna :)

Hér kemur annars einn góður en langur, hvað má maður eiginlega skrifa mikið hérna...

Eitt sinn var maður sem stamaði gríðarlega mikið sem réði sig sem farandsölumaður hjá bókafyrirtæki. Yfirmenn hans höfðu smá áhyggjur af staminu í byrjun en það reyndist óþarfi því innan tíðar var hann orðinn besti sölumaðurinn þeirra.
Ári síðar var hann verðlaunaður fyrir að vera besti sölumaður fyrirtækisins fyrr og síðar. Þegar hann var inntur eftir sölutaktíkinni sagði hann:
Éééeg lalalabba u u upp að húúúsinu og bababanka. ÞÞÞegar ei einhver kkkkemur ttiil dyra sei sei segi ég: viviviltu kau kaupa bibbiblíuna e e eða á éég að llllesa hana fffyrir þig?

Til að muna .. said...

Hei - kommon - hvar er færsla dagsins ... ?