Wednesday, April 30, 2008
Kæru námssystur og MLISur
Þá kallar vorið á okkur og allt óðum að kárast hvað svo sem einkunnir munu segja. Stefnan tekin á vinnuna aftur og mun ég ekki njóta návistar ykkar þetta haustið en vonandi næsta vor. Gangi ykkur vel og sjáumst heilar. Kveðja Siggerður Ólöf
Monday, November 12, 2007
Úti er ævintýri
| Þar sem ég hef sett hér fjórar færslur sem stigbreytast nokkuð rétt. Döpur - daprari- búin að vera. Þá hef ég ákveðið að láta bloggi mínu lokið að sinni. Með þökk fyrir góð "komment" Góðar stundir. |
Sunday, November 11, 2007
Á sunnudagskvöldi!
| Í kvöld líður mér eins og ég gæti verið að skrifa minn eigin annál. Ætlaði að vera mjög dugleg alla helgina. Læra og vera mjög skipulögð. Á föstudagskvöldi búin að koma krökkunum í flug, ekki neitt smá dýrt, og á leiðinni í rólegheit. Ásökuð um að vera sófadýr svo ég féllst á að fara á kráarrölt með einni annarri. Kringlukráin, úff menningarsjokk. Heim að sofa sitja svo allan laugardaginn yfir mömmu gömlu en hún er orðin verulega gömul og lúin. Heim að kvöldi og vaknaði hress og nú skyldi sko lært. Fór og sókti blaðið svona til að taka smá púls á umheiminum. Sá að kjallaradyrnar voru opnar og fór og lokaði, en þá sá ég að brotist hafði verið inn í þvottahúsið og þvottavélin mín var horfin. Horfin vá. Hver var að stríða mér. Nei þetta var alvaran og búin að vera í lögguleik og tryggingaleik í allan dag. Það sem meira er ef þetta er ekki innbrot bara einhver sem hefur komist inn um opnar dyr er þetta ekki einu sinni bætt út tryggingum. Svo ég fór og keypti þvottavél. 80.000 kr. Hvernig væri nú að lukkuhjólið færi að snúast mér í vil. Þurfum við eitthvað að ræða þetta! Nei ég hélt það líka svo mér líður bara eins og Ólafi í Næturvaktinni og finnst eins og verið sé að segja:Þegiðu Ólöf. |
Tuesday, November 6, 2007
Á leiðinni í skólann
| Góðan dag. Oft heyrist þessa dagana að íslenskan sé að deyja út og enskan hafi tekið yfir höndina en er þetta eitthvað nýtt? Ekki endilega en viljum við að stóru fyrirtækin sem hugsa mest um útrás taki upp ensku sem sitt vinnumál. Er það í lagi. Ef þessi fyrirtæki geta samið sínar eigin reglur og gera þannig daglega árás á gamla ylhýra tungumálið okkar verður þá ekki stutt í það að við förum að veraða eins og í gamla daga þegar heldra fólkið talaði dönsku en hinir íslensku. Nú verður það bara enska í stað dönskunnar. Hvernig væri að taka upp almenna umræðu um strauma og stefnur í þessum málum. Kannski sækir þessi hugsun fastar að mér núna. Þar sem ég er á leiðinni í tövutíma og allt gæti verið á ensku. Þarna reynum við þó að finna íslensk orð yfir flest það sem við framkvæmum. Af hverju geta sérfróðir menn og konur þá ekki notað íslenskuna við sín störf? "Pældíðí mar" Þetta er svo þung umræða að ég þarf örugglega að fara á bílnum í stað strætó. |
Thursday, November 1, 2007
Á góðum fimmtudegi
| Það er eitthvað svo gott við fimmtudaga. Alveg að koma föstudagur og þá kemur næst mánudagur og þá er enginn tími til neins. Svo reynum að njóta fimmtudaganna. Veistu hvað er líkt með konu og ljósastaur? Þau láta ljós sitt skína. |
Tuesday, October 30, 2007
Fyrsta færsla
Góðan dag. Ég er að fara mín fyrstu skref í bloggi. Hér mun ekki verða skrifað um nýjustu kjaftasöguna en er til í að fá góða brandara. Það kemur sér oft vel að kunna einn til tvo góða en þar sem ég gleymi alltaf öllum strax væri fínt að fá brandara senda.
Hvernig var þetta með manninn sem var að byrja í Háskólanum og var að tala við vin sinn sem spurði á hvaða grein hann væri. Þá svaraði vinurinn á þá leið: "Hvað fæ ég ekki borð og stól eins og hinir".
Hvernig var þetta með manninn sem var að byrja í Háskólanum og var að tala við vin sinn sem spurði á hvaða grein hann væri. Þá svaraði vinurinn á þá leið: "Hvað fæ ég ekki borð og stól eins og hinir".
Subscribe to:
Comments (Atom)